In order to view this page you need Flash Player 9+ support!
Norrænn dagur í Flúðaskóla
Miðvikudaginn 18. apríl verður norrænn dagur í Flúðaskóla. Allan daginn munu nemendur í Flúðaskóla vinna að mismunandi verkefnum á mismunandi tímum þar sem dregin verður upp tengingin á milli norrænu tungumálanna. Aðaláhersla er lögð á dönsku.
10. bekkur stýrir dagskránni sem lítur svona út í dag:
- foreldrar/aðstandendur nemenda í 10. bekk sem búið hafa á Norðurlöndum munu koma og segja okkur frá reynslu sinni og upplifun
- 10. bekkur sýnir stuttmyndir/auglýsingar sem þau hafa gert á dönsku
- kynning á dönskum lýðháskólum
- 10. bekkur með glærukynningu
- spjall við íslenskan og danskan nemanda í Uldum – lýðháskólanum – skype. Fáum að kíkja inn í skólann og sjá og heyra.
Allir velkomnir :)
Norræni skóladagurinn verður haldinn í Flúðaskóla, miðvikudaginn 18. apríl en ekki fimmtudaginn 19. apríl eins og stendur í áætlun. Nánar um þennan dag síðar.
Anna.
Þá er 3. önnin hafin af fullum krafti og ýmislegt sem þarf að huga að. 10. bekkur klárar um þessar mundir glærusýningar sem eru í vinnslu um danska lýðháskóla og fleira. Einnig förum við á fullt að undirbúa norræna daginn sem er settur þann 19. apríl (með fyrirvara um breytingar). Hann verður nánar auglýstur síðar en það er lokahnykkurinn okkar í verkefninu "De skandinaviske ambassadøre" sem við höfum nú unnið að í u.þ.b. ár í samvinnu við Danina í Grantofteskolen.
9. bekkur er búinn að sækja um hjá Nordplus en þau hafa undirbúið og unnið með kennara að umsókn um verkefni sem við vonum svo sannarlega að fái meðbyr hjá Nordplus. Meira um það þegar það er orðið ljóst hvort við fáum styrk til verkefnisins.
7. og 8. bekkur er á flugi í allskonar skemmtilegum verkefnum og kemur alltaf brosandi út úr kennslustundunum.
Langt er liðið á miðönn og mörg skemmtileg verkefni að baki og einnig framundan.
Við erum að vinna í því að setja inn fréttir hjá hverjum bekk fyrir sig. Vonandi skilar það sér á næstu dögum.
Anna.
Í síðustu viku voru vinir okkar frá Grantofteskolen í heimsókn en við í Flúðaskóla höfum verið í samstarfi við þann skóla síðan 2005. 10. bekkur í Flúðaskóla heimsækir Grantofteskolen og þau koma til okkar og saman vinnum við að ýmsum verkefnum. Þetta árið vinnum við saman í verkefni sem heitir "De skandinaviske ambassadörer" þar sem aðalverkefni þeirra er að kynna norræna tungu í samfélaginu, fyrir öðrum nemendum í Flúðaskóla og í fleiri skólum.
28 nemendur og 2 kennarar komu frá Grantofteskolen á sunnudag og voru fram á fimmtudag. Við unnum saman í ýmsum verkefnum, fórum saman í ferðalög um Suðurland, heimsóttum aðra skóla og fórum í alla bekki í Flúðaskóla þar sem Danirnir og nemendur úr 10. bekk fóru í leiki með nemendum og/eða kenndu þeim dálítið í dönsku. Einnig fóru danskir nemendur heim með nemendum úr Flúðaskóla og fengu að fara í fjós, skreppa á hestbak og að síðustu var þeim boðið í miðdegiskaffi eins og gerist best. Foreldrar og samfélagið allt í kringum Flúðaskóla hefur tekið á móti vinum okkar frá Grantofteskolen af virðingu og vinsemd og ber að þakka fyrir það.
Verkefnið "De skandinaviske ambassadörer" heldur áfram en við eigum t.a.m. eftir að vinna áfram að verkefnum með nemendunum í Grantofteskolen, heimsækja fleiri skóla, halda norrænan dag í Flúðaskóla og kenna/kynna betur norræn tungumál í öllum bekkjum.
DANSK-uddragelse
I sidste uge havde vi besög af vores danske venner i 10. klasse i Grantofteskolen i Ballerup og deres 2 lærere. De var her hos os i 4 dage. Vi har arbejdet sammen siden i 2005 hvor vi laver forskellige opgaver sammen, både igennem internet og når vi besöger hinanden.
Vi lavede forskellige opgaver samman, besögte en anden skole hvor vi fortalte om vores samarbejde og lærte eleverne en sang, besögte alle klasser i Fludaskoli hvor vi lavede forskellige opgaver sammen med eleverne, tog på rejse sammen og så på smukke vandfalde og oplevede blæst og regnvejr i höj grad:). De danske elever fik også lidt at vide om spögelser i Sydlandet;).
Vores samarbejde omkring projektet "De skandinaviske ambassadörer" er ikke færdigt og vi kommer til at arbejde videre på det inden skolen slutter næste forår.
Síða 1 af 2